151. löggjafarþing — 81. fundur,  20. apr. 2021.

skóli án aðgreiningar.

[13:57]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Hugmyndin um skóla án aðgreiningar var innleidd í grunnskóla á grundvelli barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Salamanca-yfirlýsingarinnar frá 1996. Hún gengur út á það að skóli skuli mæta sérhverju barni í námi og félagsstarfi óháð atgervi þess eða stöðu. Þetta var upphaflega sett inn í lög til að styrkja stöðu fatlaðra barna þannig að þau mættu sem best þroskast og dafna innan samfélagsins en ekki á jaðri þess. Þessi hugmyndafræði beinir ekki síður sjónum að kenningum um fjölgreind og þeirri staðreynd að sérhvert barn, strákur eða stelpa, fatlað eða ófatlað, innfætt eða aðflutt, er einstakt, hvert og eitt barn býr yfir hæfileikum og getu og þarf að fá tækifæri til að þroska hæfileika sína, hvort sem um er að ræða bóknám, vísindi, verknám eða listnám. Þessi hugsun hefur fært nýja sýn inn í skólastarf þar sem áhersla er á samstarf kennara og starfsfólks. Margir skólar hafa náð góðum árangri með fjölbreyttum og sveigjanlegum kennsluháttum sem hafa stuðlað að bættum starfsanda, bæði meðal nemenda og starfsfólks. Hins vegar hafa stjórnvöld beinlínis unnið gegn þessum markmiðum með ofuráherslu á bókleg samræmd próf þar sem allir skulu mældir með sömu mælistikunni. Þá skal steypa alla í sama mót, óháð styrkleika eða áhugasviði. Það hefur orðið til þess að skólar hafa veigrað sér við að víkja frá þeirri línu sem mun koma til prófs á kostnað frumleika, sveigjanleika, verknáms og listgreina. Ekki er nokkur vafi á að við þurfum að veita skólum meira svigrúm til að koma til móts við hvert og eitt barn. En fyrst og fremst þarf að veita kennurum svigrúm til að vinna eftir aðalnámskrá án þess að vera með hendur bundnar og fætur hlekkjaða.