Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

störf þingsins.

[14:22]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Áætlun um nýtingu og vernd náttúrusvæða var ekki á dagskrá hv. umhverfis- og samgöngunefndar í morgun. Samkvæmt starfsáætlun, lesi ég hana rétt, eru sex þingdagar virkir eftir hér á þessu 152. þingi okkar. Það setur að mér ugg og ég er farin að hafa áhyggjur af því að áætlun um nýtingu og vernd náttúrusvæða, svokölluð rammaáætlun, verði ekki afgreidd úr umhverfis- og samgöngunefnd á þessu þingi. Það er full ástæða til að hafa áhyggjur af því. Það var mælt fyrir áætluninni í fjórða sinn frá því að hún leit dagsins ljós árið 2016, fyrir sex árum, hér á þingi í haust, eða réttara sagt eftir áramót, ef ég man þetta rétt, en fimm sinnum hefur þessi sama áætlun, 3. áfangi rammaáætlunar, verið á málaskrá þeirrar ríkisstjórnar sem hér hafa verið við völd. Sömu flokkar sem seint og snemma þreytast ekki á því að ræða um mikilvægi endurnýjanlegrar raforku eða raforkuframleiðslu og nauðsyn orkuskipta virðast núna sitja á höndum sér þegar kemur að afgreiðslu þessa mikilvæga áfanga í rammaáætlun og ákvörðunar um nýtingu og vernd náttúrusvæða hér á landi. Á sama tíma og 4. áfanginn er u.þ.b. að verða tilbúinn og hafin er vinnsla við 5. áfangann situr 3. áfangi rammaáætlunarinnar fastur í hv. umhverfis- og samgöngunefnd eina ferðina enn, rétt um sex árum eftir að hann leit dagsins ljós. Það er ástæða til að spyrja, frú forseti: Hvað veldur?