Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

lýsing verðbréfa o.fl.

385. mál
[20:33]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Mig langar bara örstutt að nefna það að hér erum við að taka upp regluverk frá Evrópusambandinu í tengslum við almenn útboð eða verðbréf sem eru tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Mig langaði bara að minna okkur á það að við erum nýbúin að fara í gegnum frekar umdeilt útboð og sölu á markaði og kannski eigum við eftir að komast að því að við hefðum getað komist fram hjá sumum af þeim vandamálum ef þetta frumvarp hefði verið komið í gegn. Ég þori samt ekki lögfræðilega að segja að það hefði gert það. En allar bætur á regluverki í tengslum við svona hluti eru af hinu góða þannig að ég styð þetta frumvarp.