Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

stéttarfélög og vinnudeilur.

272. mál
[23:40]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og er alveg saddur og sáttur við það. Það kom fram hjá hæstv. forseta að málið fer til nefndar á milli 2. og 3. umr. þannig að vonandi verður unnið úr þeim málum sem hefur verið fundið að hjá þingmönnum hér í ræðum og er það vel. Við þurfum að vanda mikið til allra mála sem við afgreiðum og ekki síst svona mála sem varða lög og rétt, dómaramál og skipan þeirra í sín störf. Við höfum of margar minningar um það að slík mál hafa farið út um maga og læri, ef ég leyfi mér að taka þannig til orða. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra og þakka bara fyrir þessa ræðu og svör þingmannsins.