145. löggjafarþing — 82. fundur, 1. mars 2016.
styrkir vegna sýninga á kvikmyndum á íslensku í kvikmyndahúsum hér á landi.
369. mál
Virðulegi forseti. Sem framsögumaður hafði ég óskað eftir því að málið gengi til nefndar á milli umræðna en ég dreg þá ósk til baka þar sem nú liggur fyrir að ekki munu koma fram viðbótarsjónarmið í málinu. Ég legg því til að málið verði samþykkt eins og það liggur fyrir og gangi til 3. umr.