Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

störf þingsins.

[14:05]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Setjum upp smá leikrit hérna. Ég er ráðherra og ég fæ umsóknir um stöðu skrifstofustjóra í ráðuneyti mínu. Þar er efst á lista systir mín og ég segi bara: Já, heyrðu frábært, hún er efst á lista í hæfnismati. Ég ræð hana bara. Frábært. Hverjir yrðu brjálaðir hérna? Allir? Ég býst alla vega við því. Það væri gjörsamlega fáránlegt að ég væri að ráða systur mína í starf hjá ríkinu. Það væri galið. En ég segi náttúrlega: Heyrðu, hún mátti alveg sækja um, auðvitað — eins og það sé einhver vörn fyrir það að ég sé að ráða hana í starf. Já, systir mín mætti sækja um starfið en ég sem ráðherra mætti að sjálfsögðu ekki ráða hana. Þar er hagsmunaárekstur. Þetta þekkjum við öll. Þetta er algjörlega óumdeilt.

Hliðstætt vandamál erum við að glíma við í Íslandsbankamálinu. Þar var faðir, fjölskyldumeðlimur fjármálaráðherra, sem keypti ríkiseignir og hann mátti það alveg, væntanlega, en ráðherra mátti ekki selja honum þær. Það er rosalega skýrt. Þetta er nákvæmlega eins og að ráða í starf. En einhverra hluta vegna erum við enn þá með sama ráðherra og seldi fjölskyldumeðlimi ríkiseignir fyrir einhverjar stórkostlega undarlegar sakir. Við erum að bíða eftir niðurstöðum Ríkisendurskoðunar eða Fjármálaeftirlits sem ég veit ekki hvort skoða endilega þann hluta málsins. Ég hlakka rosalega til að sjá þá skýrslu og sjá hvort eitthvað sé talað um þennan hluta málsins. Af þeim dæmum sem við þekkjum um t.d. mannaráðningar eða skipan dómara eða eitthvað því um líkt — ef ég væri ráðherra að skipa einhvern dómara mætti ég að sjálfsögðu ekki skipa fjölskyldumeðlim. Ég yrði að stíga til hliðar. Ég væri vanhæfur. Augljóslega. Við erum öll sammála um það. Við hljótum öll að vera sammála um það og sjá ástæður þess að svo sé. En einhverra hluta vegna gleyma því allir þegar verið er að selja Íslandsbanka. Þannig að ég hlakka til að sjá þessar skýrslur (Forseti hringir.) og ég hlakka til að sjá hvort talað verði um þetta vandamál.