152. löggjafarþing — 82. fundur, 31. maí 2022.
stéttarfélög og vinnudeilur.
272. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hvers vegna það er finnst mér ljóst af inntaki frumvarpsins. Það eru í rauninni þessar auknu hæfiskröfur, að við séum með dómara sem eru nú þegar búnir að sýna fram á að þeir uppfylli þessar hæfiskröfur sem eru settar og hafi tiltekna reynslu af dómstörfum. Það tel ég að sé inntak þessara auknu krafa um hæfisskilyrði dómara.