152. löggjafarþing — 83. fundur,  1. júní 2022.

tilhögun þingfundar.

[15:01]
Horfa

Forseti (Oddný G. Harðardóttir):

Þrátt fyrir 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfunda er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en það sem þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu? (BLG: Já.) Atkvæðagreiðsla um lengd þingfundar mun fara fram á eftir dagskrárliðnum störf þingsins.