132. löggjafarþing — 83. fundur,  11. mars 2006.

Framhald umræðu um frumvarp til vatnalaga.

[12:22]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Forseti hefur áður svarað því til: því styttri ræður hjá hv. þingmönnum þeim mun styttri þingfundur, svo það komi alveg skýrt fram.

Forseti lét þess líka getið hér fyrr í máli sínu að hann hefði hug á því að funda með formönnum þingflokka eftir að umræðum um fundarstjórn er lokið og áður en málefnaleg umræða hefst um eina málið sem er á dagskrá.