152. löggjafarþing — 83. fundur,  1. júní 2022.

stéttarfélög og vinnudeilur.

272. mál
[15:45]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég fagna því að aftur eigi að taka málið inn til velferðarnefndar og ég mun sitja hjá í þeim greinum frumvarpsins sem þarfnast frekari skoðunar. Það eru þær greinar sem varða skilyrði skipunar í þennan Félagsdóm. Ég tel fulla ástæðu til að rýna þá þætti frumvarpsins betur einmitt vegna þeirra athugasemda sem hafa komið fram frá GRECO.