152. löggjafarþing — 83. fundur,  1. júní 2022.

stéttarfélög og vinnudeilur.

272. mál
[15:46]
Horfa

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Í gærkvöldi mælti ég fyrir nefndaráliti velferðarnefndar um Félagsdóm. Líkt og hv. þingmenn sem hingað hafa komið hafa nefnt þá met ég umræðuna þannig að mikilvægt sé að málið fari til velferðarnefndar milli 2. og 3. umr. þar sem skýra þurfi frekar nokkur atriði er varða röksemdirnar á bak við skipan dómsins eins og þar er lagt til. Ég legg því til að málið fari aftur til velferðarnefndar hér í dag.