132. löggjafarþing — 84. fundur, 13. mars 2006.
Vatnalög.
268. mál
Í tilefni af ummælum hv. þingmanns vill forseti geta þess að það hefur legið fyrir í allan dag að efnt yrði til kvöldfundar. Forseti getur ekki upplýst á þessari stundu hvenær kvöldfundi lýkur en það hefur legið fyrir og komið fram á fundum forseta með þingflokksformönnum í dag, að ég hygg a.m.k. tvívegis.
Varðandi það atriði sem hv. þingmaður nefndi til viðbótar vill forseti geta þess að öllum hv. þingmönnum á að vera ljóst að fundur stendur yfir.