135. löggjafarþing — 84. fundur, 3. apr. 2008.
ráðstafanir í efnahagsmálum.
486. mál
Hæstv. forseti. Þó að ég hafi tekið undir að það sé sjálfsagt að skilgreina viðskiptahallann á ýmsan hátt eftir því hvernig hann verður til og til hvers hann muni leiða þá vil ég nú samt gera þá athugasemd, hæstv. forseti, að ég tel að hann verði í fæstum tilfellum mjög indæll eins og hv. þingmaður orðaði það.