Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

staðfesting kosningar.

[13:49]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur fengið til meðferðar tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu Ólafs Þórs Gunnarssonar sem 2. varaþingmanns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Suðvesturkjördæmi. Nefndin hefur fundað til að fjalla um kosninguna og kjörgengið og mælir einróma með staðfestingu á kosningu Ólafs Þórs Gunnarssonar.