138. löggjafarþing — 86. fundur, 4. mars 2010.
hlutafélög og einkahlutafélög.
71. mál
Virðulegi forseti. Ég er hlynntur því máli sem kemur hér til atkvæðagreiðslu. Ég tel að hér sé farið fram af hófsemi. Atvinnulífinu er gefinn kostur á að ná fram sömu markmiðum. Þetta frumvarp er einnig í samræmi við þær ályktanir sem komið hafa frá Samtökum atvinnulífsins þannig að ég mun segja já.