Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

ókeypis getnaðarvarnir fyrir einstaklinga yngri en 25 ára.

99. mál
[18:44]
Horfa

Flm. (Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér með þingsályktunartillögu minni um ókeypis getnaðarvarnir fyrir einstaklinga yngri en 25 ára. Flutningsmenn tillögunnar eru, ásamt þeirri sem hér stendur, hv. þingmenn Jóhann Friðrik Friðriksson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Þórarinn Ingi Pétursson, Gísli Rafn Ólafsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Inga Sæland, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson. Tillagan var áður lögð fram á 152. löggjafarþingi en náði þá ekki fram að ganga.

Hæstv. forseti. Ég ætla hér með að gera ráð fyrir því að flestallir landsmenn stundi kynlíf. Forvarnir og kynfræðsla fyrir ungt fólk hefur batnað töluvert síðastliðin ár en við höfum séð og heyrt af því að ungmenni stundi óöruggt kynlíf í meiri mæli. Þetta kemur m.a. fram í alþjóðlegu rannsókninni Heilsa og líðan skólabarna, sem lögð hefur verið fyrir hér á landi frá árinu 2006 og einnig í tölfræði klamydíusmita sem finna má á heimasíðu sóttvarnalæknis. Á heimasíðu sóttvarnalæknis kemur fram að það er mjög mikill munur á fjölda klamydíusmita meðal einstaklinga fyrir og eftir 25 ára aldur. Kynheilbrigði er lýðheilsumál og öruggt kynlíf skiptir þar öllu máli. Notkun getnaðarvarna er meginþáttur þess. Við eigum að stuðla að því að ungmenni geti ávallt stundað öruggt kynlíf og gefa þeim tækifæri á að hafa meiri stjórn á sínu lífi. Fjárhagslegar ástæður eiga ekki að hafa úrslitavald um það hvort ungmenni noti getnaðarvarnir eða ekki, en fram hefur komið að fjárhagur geti komið í veg fyrir að ungt fólk noti getnaðarvarnir, sérstaklega dýrari gerðir þeirra sem teljast sýna meiri árangur til lengri tíma. Til eru sögur af einstaklingum sem sleppa því að nota getnaðarvarnir til að spara pening. Eitt af því sem því miður getur fylgt kynlífi eru kynsjúkdómar. Einnig fylgja því ávallt líkur á barneignum. Til að koma í veg fyrir þungun eru til ýmsar gerðir getnaðarvarna. Það er smokkurinn, pillan, lykkjan, stafurinn, sprautan, hringurinn. Það er komin mikil fjölbreytni í þennan flokk en þetta eru getnaðarvarnir sem eru hannaðar til að koma í veg fyrir þungun og smokkurinn einnig fyrir kynsjúkdóma þegar viðkomandi vill minnka líkur á því.

Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að einstaklingur notar getnaðarvarnir, en þær varða almennt barneignir. Einstaklingur hefur ýmist ekki áhuga á barneignum, a.m.k. á ákveðnu tímabili, telur sig ekki tilbúinn til barneigna eða telur sig ekki hafa burði til að veita barni þau lífsgæði sem hann vill geta veitt. Almennt tengist það ungum aldri, en notkun getnaðarvarna er algengust meðal ungs fólks. Fjárhagur ungs fólks er breytilegur enda er fjöldi þeirra t.d. bara í hlutastarfi eða í vaktavinnu með námi. Það kemur fyrir í sumum mánuðum að peningaskortur neyði ungt fólk til að hagræða. Þá eru líkur á því að það hætti að kaupa getnaðarvarnir sem bitnar á kynheilbrigði þeirra.

Tillaga þessi er að gera getnaðarvarnir ókeypis fyrir 25 ára og yngri einstaklinga. Hún er til þess fallin að grípa ungt fólk sem neyðist til að taka slíkar ákvarðanir og veita þeim greitt aðgengi að getnaðarvörnum með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á almennt kynheilbrigði og lýðheilsu þjóðarinnar. Slík aðgerð er ekki nýnæmi á alþjóðagrundu. Getnaðarvarnir eru ókeypis í fjölda ríkja. Það er mismunandi hvaða verjur eru aðgengilegar að kostnaðarlausu og hverjum þær eru aðgengilegar. Innan Evrópu eru getnaðarvarnir aðgengilegar ungmennum þeim að kostnaðarlausu, þar á meðal í Þýskalandi, Belgíu, Hollandi, Noregi, Bretlandi og Frakklandi. Í þessu samhengi ætla ég að líta til Frakklands sem hefur nýlega gert getnaðarvarnir ókeypis fyrir konur sem eru yngri en 25 ára. Meðal röksemda ríkisstjórnar Frakklands fyrir þeirri aðgerð eru áhyggjur um að konur hætti að nota getnaðarvarnir af fjárhagslegum ástæðum. Leiðarljósið er almennt það sama meðal annarra ríkja og í þessari þingsályktunartillögu, þ.e. að fjárhagslegar aðstæður eigi aldrei að liggja til grundvallar á vali milli öruggs eða óöruggs kynlífs. Ungt fólk mun stunda kynlíf, það er staðreynd. Okkar hlutverk er að styðja þau við að taka réttar ákvarðanir um notkun getnaðarvarna eftir þörf.

Kynsjúkdómar eru eins mismunandi og þeir eru margir. Þeir hafa þó eitt sameiginlegt. Þeir geta allir haft neikvæð áhrif á lífsgæði einstaklinga, jafnvel verið þeim hættulegir í langan tíma eða jafnvel ævilangt. Þeir geta leitt til ófrjósemi og ýmissa veikinda. Sem dæmi er talið að klamydía sé ein algengasta ástæða ófrjósemi meðal ungs fólks. Það er mikilvægt lýðheilsumál að spornað sé við útbreiðslu kynsjúkdóma eftir fremsta megni. Þeir geta reynst hættulegir ef þeir eru ekki meðhöndlaðir tímanlega og á réttan hátt og þeir reynast almennt ólæknandi. Þá kemur einungis til greina að draga úr einkennum og hindra framgang þeirra tímabundið. Þeir koma stundum aldrei í ljós á áberandi hátt og því þurfa einstaklingar að huga að kynheilbrigði í hvívetna, nota verjur og fara reglulega í skoðun ef tilefni er til þess.

Það er mat flutningsmanna tillögu þessarar að stjórnvöld hér á landi eigi að fylgja fordæmi annarra landa og gera getnaðarvarnir aðgengilegar einstaklingum undir 25 ára þeim að kostnaðarlausu. Ungt fólk á að geta stuðlað að kynheilbrigði og spornað við óskipulegum barneignum án áhyggja um hvaða áhrif það hefur á veskið hverju sinni.

Með samþykkt tillögunnar myndi Alþingi feli heilbrigðisráðherra að útfæra þessi áform með tilliti til takmarkana og þeirra staða sem getnaðarvarnir yrðu aðgengilegar einstaklingum yngri en 25 ára þeim að kostnaðarlausu. Með takmörkunum er aðallega átt við afhendingu smokka, þ.e. að einstaklingur geti ekki komið og óskað eftir þúsundum smokka á einu bretti.

Hæstv. forseti. Ég bind miklar vonir við að þingheimur standi saman með ungu fólki og kynheilbrigði þjóðarinnar með samþykkt tillögunnar. Ég þakka öllum þeim sem standa að tillögunni með mér og lokum óska ég eftir því að hún gangi til hv. velferðarnefndar.