133. löggjafarþing — 87. fundur, 13. mars 2007.
trjáræktarsetur sjávarbyggða.
51. mál
Hæstv. forseti. Það er nú ekki mjög auðvelt að svara því á þessari stundu. Þetta verður bara að skoðast þegar búið er að ákveða að þetta verði gert. Þá verði tekið má segja mið af öðrum setrum sem eru víða á landinu. En ég get ekki sagt neina ákveðna tölu í þessu. Þetta er það sem ráðherra kemur til með að skoða þegar hann er búinn að fá þessa samþykkt í sínar hendur.