140. löggjafarþing — 87. fundur, 24. apr. 2012.
heimild til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði.
718. mál
Hæstv. forseti. Ég hef alltaf verið með þann skilning að það þyrfti lagasetningu til að halda áfram með þetta mál, ekki síst vegna þess að það er undanskilið ákvæði í lögum um ríkisábyrgðir þannig að nauðsynlegt var að taka það fyrir. Eins og hv. þingmaður veit hef ég aðeins verið í þessari ríkisstjórn í þrjá og hálfan mánuð en einhvern veginn hefur aldrei verið vafi í mínum huga að það þyrfti að fara í gegnum þingið með lagaumgjörð í kringum þessa framkvæmd.