144. löggjafarþing — 87. fundur,  13. apr. 2015.

um fundarstjórn.

[17:15]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Mér barst til eyrna að hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, hefði beðist afsökunar á orðum sem hún lét falla hér í hita leiksins fyrr í dag. Ég vil bara þakka fyrir það og segja úr þessum ræðustóli að sú afsökunarbeiðni er tekin til greina.