145. löggjafarþing — 87. fundur, 14. mars 2016.
Frestun á skriflegum svörum.
Borist hafa tvö bréf frá velferðarráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 789, um nefndir, starfshópa og verkefnisstjórnir, frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur og við fyrirspurn á þskj. 809, um útgjöld vegna sérfræði-, ráðgjafar- og kynningarstarfa, frá Willum Þór Þórssyni.