150. löggjafarþing — 87. fundur,  14. apr. 2020.

mannabreytingar í nefndum.

[13:35]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vill tilkynna að honum hefur borist erindi frá þingflokki Viðreisnar um mannaskipti í nefndum, samanber 1. mgr. 16. gr. þingskapa, þannig að Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir taki sæti sem aðalmaður í allsherjar- og menntamálanefnd í stað Jóns Steindórs Valdimarssonar og Jón Steindór Valdimarsson taki sæti sem varamaður í sömu nefnd. Einnig taki Jón Steindór Valdimarsson sæti sem aðalmaður í efnahags- og viðskiptanefnd og Hanna Katrín Friðriksson taki sæti sem varamaður í sömu nefnd. Þá taki Jón Steindór Valdimarsson sæti áheyrnarfulltrúa í fjárlaganefnd og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir taki sæti áheyrnarfulltrúa í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir tekur sæti varamanns í umhverfis- og samgöngunefnd og í þingmannanefndum EFTA og EES.

Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.