151. löggjafarþing — 88. fundur,  3. maí 2021.

samstæðureikningar sveitarfélaga.

[14:24]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég vil bara ítreka fyrra svar mitt, að mínu mati var þetta bréf ráðuneytisins nokkuð skýrt og hv. þingmaður fór hér yfir niðurstöðurnar. En ef það er einhver vafi um það meðal einstakra sveitarfélaga er sjálfsagt mál að reyna skýra það enn frekar og jafnvel að kalla eftir viðbrögðum frá þeim sveitarfélögum sem um þetta véla áður en menn grípa til annaðhvort frekari aðgerða eða hugsanlega undirbúnings að einhverjum lagabreytingum og fái fyrst fram hver hinn sameiginlegi skilningur allra er, hvort menn séu ekki með sameiginlegan skilning á þessu máli, sem mér fannst vera á sínum tíma nokkuð skýr.