Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

áhafnir skipa.

185. mál
[19:35]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér er um stórt mál að ræða og hagsmunirnir sem eru undir eru töluvert miklir. Í ljósi þess að verið er að kalla málið aftur inn til nefndar, og ég sit í þessari nefnd og hef heyrt það ákall sem aðrir þingmenn eru að lýsa hér í sal, þá ætla ég einnig að sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu og sjá hver lokaútkoma málsins verður eftir frekari vinnu nefndarinnar.