151. löggjafarþing — 88. fundur,  3. maí 2021.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 235/2020 um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn .

691. mál
[14:53]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti utanríkismálanefndar um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 235/2020 um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn, þ.e. félagaréttur. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneyti og Sigurbjörgu Stellu Guðmundsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 235/2020 frá 11. desember 2020 um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2017/828 frá 17. maí 2017 um breytingu á tilskipun 2007/36/EB að því er varðar hvatningu til þátttöku hluthafa til lengri tíma. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir þetta álit rita hv. þingmenn Sigríður Á. Andersen, formaður og framsögumaður nefndarálits utanríkismálanefndar, Ari Trausti Guðmundsson, Bryndís Haraldsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Logi Einarsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Silja Dögg Gunnarsdóttir.