Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 89. fundur,  14. júní 2022.

Slysavarnaskóli sjómanna.

458. mál
[00:41]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Stefán Vagn Stefánsson) (F):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar í forföllum framsögumanns, Höllu Signýjar Kristjánsdóttur, um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Slysavarnaskóla sjómanna.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Eggert Ólafsson frá innviðaráðuneyti.

Með frumvarpinu eru lagðar til nokkrar breytingar á lögum um Slysavarnaskóla sjómanna vegna breytinga sem orðið hafa í starfsemi skólans frá því að lögin voru sett fyrir um þremur áratugum síðan.

Meiri hlutinn tekur undir efni frumvarpsins og leggur til að það verði samþykkt óbreytt.

Bjarni Jónsson og Helga Vala Helgadóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Jakob Frímann Magnússon, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, lýsti sig samþykkan álitinu.

Undir álitið rita Vilhjálmur Árnason, formaður, Halla Signý Kristjánsdóttir, framsögumaður, Ingibjörg Isaksen, Njáll Trausti Friðbertsson, Orri Páll Jóhannsson, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.