141. löggjafarþing — 89. fundur, 6. mars 2013.
vegurinn um Súðavíkurhlíð.
Hæstv. forseti. Mér finnst það vera heilbrigðisvottur fyrir þingið að alþingismenn skuli vera í beinum og lifandi tengslum við dreifðar byggðir landsins og horfi til samgöngumála og samgöngubóta.
Ég vísa í mín fyrri svör. Mér finnst sjálfsagt að ganga úr skugga um og mun gera það við Vegagerðina um hvernig þessum málum er háttað.