151. löggjafarþing — 89. fundur,  4. maí 2021.

efnahagsmál.

[13:50]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Sem betur fer var íslenska ríkið í aðstöðu til að bregðast við hinum gríðarmiklu áhrifum heimsfaraldursins og gera það með aðgerðum sem þó eiga það flestar sameiginlegt að vera fyrst og fremst til þess fallnar að lina þjáningar um ákveðinn tíma, vera ákveðið deyfilyf fyrir efnahagslífið. En nú þegar hillir undir lok faraldursins þurfum við að fara að horfa á efnahagslega uppbyggingu til framtíðar eftir þessa miklu niðursveiflu því að það kemur að skuldadögum. Þá má ekki gleyma að horfa til þess hvernig ástandið var orðið áður en faraldurinn hófst, því að þá þegar voru mörg fyrirtæki, sérstaklega minni fyrirtæki á Íslandi, lent í verulegum vanda vegna aukins kostnaðar og ekki síst aukins regluverks, íþyngjandi regluverks. Fátt hefur líklega skipt eins miklu máli við efnahagslega endurreisn Íslands og þá stöðu sem við njótum þrátt fyrir allt núna, og sú staðreynd að við stöndum utan Evrópusambandsins og höfum sjálfstæðan gjaldmiðil. Það má í rauninni fullyrða að það hafi bjargað okkur efnahagslega. En nýtum við sjálfstæðið nógu vel? Því að hingað streyma inn á færibandi reglugerðir, íþyngjandi regluverk sem er sniðið að allt öðrum aðstæðum en aðstæðum okkar á Íslandi. Þurfum við ekki að mati hæstv. ráðherra að gera miklu betur í því að laga regluverk að aðstæðum okkar og nýta það frelsi sem við höfum? Ég tala nú ekki um að hætta að bæta sífellt við heimatilbúnum vandamálum, íþyngjandi regluverki og gjaldahækkunum, nýjum, grænum gjöldum, og hvað þetta allt heitir sem ríkisstjórnin finnur upp jafnt og þétt.