146. löggjafarþing — 9. fundur, 21. des. 2016.
Varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá 7. þm. Reykv. s., Gunnari Hrafni Jónssyni, um að hann geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því Viktor Orri Valgarðsson sæti fyrir hann á Alþingi.
Kjörbréf Viktors Orra Valgarðssonar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki tekið áður sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Viktor Orri Valgarðsson, 7. þm. Reykv. s., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]