148. löggjafarþing — 9. fundur, 22. des. 2017.
fjárlög 2018.
1. mál
Herra forseti. Eins og ég kom inn á í ræðu minni áðan hefði ég viljað sjá umtalsvert meira sett í samgöngur á næsta ári. Mörg mjög mikilvæg samgönguverkefni geta hreinlega ekki beðið lengur. Samfylkingin leggur hér til mjög hófsama breytingartillögu sem ég hvet hv. þingmenn til að styðja.
Ég segi já.