151. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2020.

græn utanríkisstefna.

33. mál
[17:21]
Horfa

Flm. (Rósa Björk Brynjólfsdóttir) (U):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir þingmáli sem var áður lagt fram á 150. þingi, síðastliðinn febrúar. Þingmálið náði ekki framgangi þá en ég bind hins vegar miklu meiri vonir við það nú en þá. Eins og flestir vita og hafa orðið varir við hafa loftslagsmálin og umhverfismálin skipað æ mikilvægari sess í stjórnmálum víða um heim, enda er um alþjóðlegt verkefni að ræða þegar kemur að því að sporna við hröðum loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra. Alþjóðasamstarf, þróunarsamvinna þar með talin, gegnir enda lykilhlutverki í umhverfismálum. Þess vegna hef ég lagt fram þingsályktunartillögu um nýja græna utanríkisstefnu Íslands sem fjórir aðrir þingmenn úr utanríkismálanefnd eru meðflutningsmenn á. Í tillögunni er aukin áhersla lögð á aðgerðir til að draga úr loftslagsbreytingum og á málflutning á því sviði á alþjóðavísu, auk þess sem grænar áherslur verða lagðar til grundvallar í ólíkum þáttum utanríkisstefnunnar.

Einhverjir kunna að spyrja: Er þörf á grænni utanríkisstefnu? Já, það er ljóst að grípa þarf til róttækra kerfisbreytinga til að vinna gegn enn verri afleiðingum loftslagsbreytinga af manna völdum, eins og hlýnun jarðar, öfgum í veðurfari, neikvæðum áhrifum á gróðurfar og lífríki, súrnun sjávar og hækkandi sjávarstöðu. Til þess þarf að rýna öll okkar kerfi út frá aðgerðum gegn hlýnun loftslags. Umhverfismálin teygja enda anga sína víða. Þau tengjast beint og óbeint fjölbreyttum samfélagslegum málefnum á borð við alþjóðasamvinnu, öryggismál og stríðsátök, efnahag og alþjóðaviðskipti, samgöngur, fólksflutninga, jöfnuð og kynjajafnrétti. Loftslagsbreytingar eru líka orðnar ein helsta ógn við mannréttindi í heiminum líkt og mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, Michelle Bachelet, hefur lýst yfir. Það er mat Sameinuðu þjóðanna að um 40% allra borgarastyrjalda í heiminum síðustu 60 árin megi rekja til hnignunar umhverfis sem orðast svo á ensku, með leyfi forseta, „environmental degradation“. Í ljósi umfangs og mikilvægis umhverfismála á alþjóðavísu er brýn nauðsyn á styrku alþjóðasamstarfi og alþjóðasamvinnu í loftslagsmálum sem bara á eftir að aukast. Þess vegna þarf öll stefnumörkun á vegum íslenska ríkisins að bera þess merki. Þar er utanríkisstefna Íslands engin undantekning.

Einn veigamesti þátturinn í utanríkisstefnu Íslands á að vera að stuðla að því að setja umhverfismál í forgang. Í því samhengi getur Ísland leikið mikilvægt hlutverk því að þrátt fyrir smæðina getur Ísland haft mjög jákvæð áhrif á þróun mála á alþjóðavettvangi eins og sannaðist til að mynda með eftirtektarverðri framgöngu okkar í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Aukin áhersla á græn málefni í utanríkisstefnu Íslands hefði líka jákvæð áhrif og gæti til að mynda orðið til enn frekari miðlunar á þekkingu á notkun jarðvarma sem er til staðar hérlendis. Sú þekking getur skipt sköpum fyrir möguleika annarra þjóða til að axla ábyrgð á orkuskiptum úr jarðefnaeldsneyti og kolum yfir í umhverfisvænni valkosti eins og jarðvarma. Sömuleiðis mætti ætla að eftirspurn eftir grænum lausnum víða um heim hvetti til enn frekari nýsköpunar á sviði grænna lausna hérlendis með tilheyrandi og nauðsynlegum áhrifum, sérstaklega nú um þessar mundir, á umhverfi, efnahag og samfélag. Slíkt væri í anda alþjóðaskuldbindinga Íslands samkvæmt rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar og Parísarsamkomulagsins.

Norðurlöndin hafa í utanríkisstefnum sínum gert sig mjög gildandi á alþjóðavettvangi í umhverfis- og loftslagsmálum. Í þingsályktunartillögunni er gert ráð fyrir því að litið verði til Norðurlandanna og utanríkisstefnu þeirra við útfærslu á grænni utanríkisstefnu. Til að nefna dæmi kynnti danska utanríkisráðuneytið undir lok síðasta árs verkefni til að koma á framfæri dönskum lausnum í loftslagsmálum og aðgerðum til að auka sjálfbærni. Auk þess hyggst ríkisstjórn Danmerkur leggja áherslu á græn verkefni í þróunarsamvinnu, líkt og fram kom í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar landsins fyrir árið 2020 þar sem veittar voru um 600 milljónir danskra króna til málaflokksins. Í þróunarsamvinnustefnu sænskra yfirvalda er m.a. lögð áhersla á umhverfislega sjálfbærni, sjálfbærni loftslags, sjávar og vatnsbóla og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda. Stór hluti þróunarsamvinnustefnu Finnlands er einnig tileinkaður loftslagsmálum í þróunarríkjum, bæði í gegnum sjóði og tvíhliða þróunarsamvinnuverkefni.

Eins og fram kemur í þessari þingsályktunartillögu minni og meðflutningsmanna er lagt til að við mótun grænnar utanríkisstefnu Íslands yrði ráðist í sex aðgerðir sem eru byggðar á aðgerðum og áherslum Norðurlandanna í þessum málaflokki. Þær yrðu eftirfarandi:

Skipaður verði sendiherra loftslagsmála sem samhæfir stefnu og skilaboð Íslands erlendis um loftslagsmál og hafi yfirumsjón með upplýsingagjöf og samhæfingarhlutverki innan Stjórnarráðsins um framkvæmd íslenskra stjórnvalda á aðgerðum gegn loftslagsbreytingum á alþjóðavettvangi.

Sérstök sendiráð Íslands verði útnefnd græn sendiráð þar sem megináherslur og verkefni viðkomandi sendiherra og sendiráða yrðu á sviði loftslags- og umhverfismála.

Stofnuð verði sérstök umhverfis- og loftslagsskrifstofa í utanríkisráðuneytinu og henni tryggður meiri mannafli og meiri fjármunir. Skrifstofunni yrði falið að efla alþjóðlega samvinnu um loftslagsmál ásamt upplýsingagjöf um loftslagsmál á alþjóðavettvangi sem og innan lands og að starfa með öðrum ráðuneytum að framkvæmd alþjóðlegra aðgerða Íslands og skuldbindinga í loftslagsmálum.

Stefna um græna fríverslun og alþjóðaviðskipti verði mörkuð og skýrð og ávallt hugsuð og unnin út frá loftslagsmarkmiðum og alþjóðlegum skuldbindingum okkar í umhverfis- og loftslagsmálum.

Meiri áhersla yrði lögð á umhverfismál við gerð fríverslunarsamninga að frumkvæði Íslendinga.

Stefna Íslands í þróunarsamvinnu verði skipulögð og skýrð út frá loftslagsmarkmiðum Parísarsamkomulagsins, heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og sem hluti af aðgerðaáætlun Íslands í loftslagsmálum. Fjárframlög til Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna verði aukin og alþjóðleg tvíhliða samvinna verði efld innan græna hagkerfisins með aðstoð eða aðkomu utanríkisráðuneytisins.

Að lokum: Stefna í einstaka þáttum alþjóðastarfs á borð við norðurslóðastefnu Íslands og stefnu í málefnum hafsins verði reglubundið uppfærð með tilliti til alvarlegrar stöðu í loftslagsmálum sem bregðast þarf hratt við og hraðar en nú.

Aðgerðir til að sporna við hröðum loftslagsbreytingum verða að vera skýrar, afdráttarlausar og markvissar. Því þarf að fara í stefnumótun á öllum sviðum samfélagsins. Þar getur alþjóðasamvinna, og utanríkisstefna þar með, leikið lykilhlutverk.