132. löggjafarþing — 90. fundur, 21. mars 2006.
Tekjuskattur.
623. mál
Frú forseti. Það er góðra gjalda vert hjá hv. þingmanni að vekja máls á þessu hér. Það hefur örugglega ekki farið fram hjá honum að þeirri nefnd sem er að störfum á vegum ríkisstjórnarinnar og Samtaka eldri borgara hefur einmitt verið falið að skoða þær skerðingar sem hv. þingmaður var að vekja athygli á og vænti ég þess að við fáum góða og brúklega niðurstöðu út úr því nefndarstarfi.