Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja o.fl. .

531. mál
[21:11]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta (fjármögnun skilasjóðs, iðgjöld og fyrirkomulag Tryggingarsjóðs vegna fjármálafyrirtækja).

Hér er lögð fram breytingartillaga sem er minni háttar og er lagatæknilegs eðlis. Henni er ætlað að gera efni frumvarpsins skýrara og þarfnast hún ekki sérstakrar umfjöllunar.

Ég legg til að breytingartillagan verði samþykkt.