Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

583. mál
[21:38]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ingibjörg Isaksen) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011, varðandi stækkanir virkjana í rekstri.

Frumvarpið felur í sér breytingu á gildissviði laga um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011, þannig að lögin nái ekki til stækkana á virkjunum sem þegar eru í rekstri og falla undir lögin sökum stærðar, svo framarlega sem stækkun felur ekki í sér rask á óröskuðu svæði.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og jafnframt bárust nokkrar umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi. Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill nefndin árétta einkum tvö atriði, annars vegar í tengslum við stækkanir virkjana á vatnasviði Þjórsár og hins vegar varðandi afmörkun landsvæða sem standa utan verndar- og orkunýtingaráætlunar.

Hvað fyrra atriðið varðar, stækkanir virkjana á vatnasviði Þjórsár, þá var vakin athygli á því í umsögn félagsins Náttúrugriða að yrði frumvarpið að lögum myndi fyrirhuguðum stækkunum virkjana á vatnasviði árinnar verða veitt brautargengi. Frumvarpið þyrfti því að skoðast með það í huga, þá sérstaklega með tilliti til þess hvort stækkunaráformin séu arðsöm framkvæmd, sem og tengsla þeirra við áherslu Landsvirkjunar á Kjalölduveitu.

Nefndin tók þetta atriði til skoðunar og óskaði eftir frekari skýringum frá Landsvirkjun um stækkunaráform á vatnasviði Þjórsár. Með hliðsjón af þeim er það mat meiri hluta nefndarinnar að stækkunaráformin séu arðbær ein og sér, þá sérstaklega í ljósi þess aukna afls sem stækkanirnar munu skila inn á kerfi fyrirtækisins. Þá liggur fyrir að aflaukning fyrirtækisins er mikilvæg til að bregðast við breytilegri eftirspurn raforku, til að mynda svo að ekki hægi á rafvæðingu samgangna.

Með hliðsjón af framangreindu er það mat meiri hlutans að Kjalölduveita sé með öllu ótengd fyrirhuguðum stækkunaráformum. Þannig er mikilvægt að haft sé í huga að Kjalölduveita hefði í för með sér umhverfisrask á óröskuðu landi. Áréttar meiri hlutinn í því sambandi þær áherslur sem birtast í frumvarpinu, þ.e. að aukinni aflþörf sé mætt með stækkun virkjana á þegar röskuðu landsvæði.

Varðandi síðara atriðið, afmörkun landsvæða sem standa utan verndar- og orkunýtingaráætlunar, þá er lagt til í frumvarpinu að landsvæði falli ekki undir verndar- og orkunýtingaráætlun, hafi því nú þegar verið raskað vegna virkjunar sem er í rekstri og fellur undir áætlunina sökum stærðar.

Við umfjöllun nefndarinnar kom þó fram það sjónarmið að stækkun virkjunar með nýtingar- og/eða virkjunarleyfi Orkustofnunar, í samræmi við samþykkt aðalskipulag, ætti ekki að þurfa að falla undir verndar- og orkunýtingaráætlun.

Í ljósi framangreindra sjónarmiða telur meiri hlutinn rétt að árétta mikilvægi þess að heildstætt hagsmunamat fari fram um virkjunarkost á óröskuðu landsvæði. Með frumvarpi þessu er á hinn bóginn markmiðið að auðvelda stækkun virkjana á þegar röskuðu landsvæði. Grundvallarmunur er þannig á röskuðu landsvæði annars vegar og óröskuðu landsvæði hins vegar. Þá áréttar meiri hlutinn að verndar- og orkunýtingaráætlun er bindandi við gerð skipulagsáætlana, auk þess sem sveitarstjórn skal samræma gildandi skipulagsáætlanir við verndar- og orkunýtingaráætlun, sbr. 1. mgr. 7. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011.

Hvað breytingar á frumvarpinu varðar þá leggur meiri hluti nefndarinnar til eina breytingu á 1. gr. frumvarpsins sem lýtur að hlutverki Orkustofnunar við mat á því hvort stækkun virkjunar falli undir verndar- og orkunýtingaráætlun. Við umfjöllun nefndarinnar komu fram sjónarmið um að hlutverk stofnunarinnar yrði samræmt stjórnsýsluhlutverki Umhverfisstofnunar samkvæmt lögum um stjórn vatnamála nr. 36/2011. Þá komu einnig fram sjónarmið um að mikilvægt væri að tryggt væri að mat Orkustofnunar tæki mið af umsögnum Skipulagsstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands. Í ljósi þessa er lagt til að við 1. mgr. frumvarpsins bætist við nýr málsliður þar sem mælt sé fyrir um að stofnunin skuli leita umsagna bæði Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands áður en hún tekur ákvörðun samkvæmt ákvæðinu.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hluta nefndarinnar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Bjarni Jónsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Orri Páll Jóhannsson, Vilhjálmur Árnason, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir, með fyrirvara.