Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

virðisaukaskattur.

679. mál
[23:52]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta efh.- og viðskn. (Þórhildur Sunna Ævarsdóttir) (P):

Virðulegur forseti. Með þessu frumvarpi eru lagðar til tvær meginbreytingar á lögum um virðisaukaskatt. Annars vegar er varðar heimild til endurgreiðslu virðisaukaskatts til björgunarsveita þannig að sérstaklega verði tekið fram að heimilt sé að endurgreiða virðisaukaskatt af vinnu við að sérútbúa ökutæki björgunarsveita til björgunarstarfa, hins vegar að fjöldatakmörkun rafbíla í ákvæði til bráðabirgða XXIV verði aukin og að kveðið verði á um ný fjárhæðarmörk heimildar til niðurfellingar virðisaukaskatts og undanþágu frá skattskyldri veltu vegna innflutnings og sölu rafbíla. Þá er einnig lögð til breyting varðandi gildandi heimild skattaðila til að undanþiggja tiltekna fjárhæð frá skattskyldri veltu við endursölu á vistvænum bifreiðum. 3. minni hluti styður ofangreindar breytingar en telur þó eftir umfjöllun nefndarinnar rétt að leggja til nokkrar breytingartillögur er varða efni frumvarpsins..

Í vinnu sinni kallaði nefndin eftir minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu um upplýsingar er varða dreifingu virðisaukaskattsívilnana á mismunandi orkugjafa og mismunandi tekjutíundir. Talnagögnin bera með sér að nýting ívilnana aukist verulega eftir því sem tekjur aukast. Þannig nýtast 47% allra ívilnana fyrir vistvæna bíla efstu tekjutíundinni þegar um einstaklinga er að ræða, en 24% fjölskyldna. Ljóst er því að ívilnunin nýtist í mun meira mæli hátekjuhópum frekar en þeim sem lægri tekjur hafa, og stríðir framkvæmd hennar þannig gegn réttlátum umskiptum í orkuskiptum.

Ég tel mikilvægt að stuðla að því að ívilnun til orkuskipta dreifist jafnar á aðrar tekjutíundir. Þar af leiðandi ættu ívilnanir einnig ná til ódýrari vistvænna ökutækja eins og metanbíla. Að efla aðgengi allra tekjuhópa að vistvænum orkugjöfum er afar mikilvægur þáttur í réttlátum umskiptum og þar af leiðandi tel ég rétt að gera tillögur þess efnis.

Ég geri einnig athugasemdir við að ívilnunarkerfið tekur ekki tillit til mikilvægis þess að fækka bílum í umferð til þess að bregðast við sívaxandi loftmengun og álagi á vegakerfið. Mengun af völdum slits á malbiki og bíldekkjum er mjög skaðleg heilsu fólks og því er ekki nóg að auðvelda kaup á rafbílum ef fækkun bíla í umferð fer ekki fram samhliða.

Í núgildandi lögum er ekkert sem kemur í veg fyrir að einn og sami einstaklingurinn eða fjölskyldan nýti heimildina oft, þannig að einn einstaklingur eða ein fjölskylda gæti eignast mörg ökutæki með nýtingu ívilnunarinnar. Sömuleiðis er ekkert sem kemur í veg fyrir að einstaklingar eða fjölskyldur sem fyrir eiga bifreiðar sem notast við jarðefnaeldsneyti njóti ívilnunar til þess að bæta við fleiri farartækjum á heimilið.

Hvers vegna geri ég athugasemdir við þetta? Í fyrsta lagi vegna þess að það er fjöldatakmörkun á þessu endurgreiðslukerfi. Það eru bara ákveðið margir sem fá aðgang að þessu endurgreiðslukerfi, það er kvóti og þak á þessu. Það að fólk sé að nýta sér endurgreiðsluna oft til þess að eiga mörg ökutæki eða að fólk sé að nýta sér endurgreiðsluna til að geta fengið sér þriðja, fjórða eða fimmta bíl — jafnvel bara eitthvert leikfang í heimreiðina — ég tel það ekki góða nýtingu, hvorki á þessum kvóta né á skattfé almennings, að niðurgreiða kaup á þriðja, fjórða eða fimmta ökutæki, jafnvel á öðru ökutæki.

Ástæðan fyrir því er tvíþætt, reyndar margþætt en við skulum fókusera á þessi tvö atriði. Það er þessi kvóti sem ég minntist á, það eru bara ákveðið margir á ári sem geta fengið þessa endurgreiðslu. Það að viðkomandi geti nýtt sér endurgreiðsluna tvisvar og jafnvel þrisvar finnst mér ekki í anda þess að hafa jafnt aðgengi að þessu. Það er augljóst að aðili sem getur keypt sér bifreið einu sinni eða tvisvar á ári tilheyrir hærri tekjutíundum en þeir sem hafa kannski einungis efni á því að kaupa sér eina bifreið. Ég óskaði eftir gögnum um það hvernig þessar ívilnanir hefðu nýst fólki eftir því hversu margar bifreiðar það átti áður en það naut ívilnunarinnar. Ég ætla aðeins að útskýra þetta vegna þess að ég held að þessi beiðni mín hafi ekki komist til skila, ég fékk a.m.k. ekki þau gögn sem ég taldi mig hafa verið að biðja um frá ráðuneytinu þannig að þau nýtast því miður ekki í nefndarálitinu né í þessari ræðu. Ég var að leitast eftir því að kanna hversu margar bifreiðar viðkomandi einstaklingar eða fjölskyldur áttu þegar þau nutu þessarar endurgreiðslu, ekki hversu margar vistvænar bifreiðar þau áttu eða hversu oft þau hefðu áður notið endurgreiðslu, heldur hversu margar bifreiðar voru skráðar á viðkomandi einstakling eða fjölskyldu þegar viðkomandi fékk þessa ívilnun. Það var einmitt til að renna stoðum undir það að oft er fólk að kaupa þriðja eða fjórða bíl fjölskyldunnar, sem verður að segjast að er alger óþarfi þegar við erum að tala um slit á vegakerfinu, loftmengun og þau alvarlegu heilsufarslegu áhrif sem slit, bæði á bíldekkjum og vegakerfinu, hefur á heilsu fólks. Þar af leiðandi er ég með breytingar sem ég geri nánar grein fyrir hér á eftir til að taka tillit til þessa.

Það segir einmitt í nefndarálitinu, virðulegi forseti, að í ljósi og í anda þess að vinna að réttlátum umskiptum, sem þýðir að það eigi að vera jafnt aðgengi að orkuskiptum óháð efnahag eða alla vega með tilliti til efnahags, þá legg ég til breytingar með það að markmiði að ívilnunin nýtist fyrst og fremst þeim sem þurfi á henni að halda fyrir eigin samgöngur. Í því felst að einstaklingar og fjölskyldur sem eiga engan bíl fyrir njóti fullrar endurgreiðslu virðisaukaskatts, en þau sem eiga einn bíl fyrir, óháð tegund, njóti hálfrar endurgreiðslu. Þau sem eiga fleiri en einn bíl fyrir njóti engrar endurgreiðslu. Þannig tel ég að hægt verði að spara umtalsverða fjármuni og tryggja jafnari dreifingu á þessum endurgreiðslum og réttlátari dreifingu á þessum kvóta sem búið er að setja á endurgreiðsluna.

Á þessum mínútum sem ég á eftir, virðulegi forseti, vil ég einbeita mér að metanbílum sem mér finnst mjög vannýtt auðlind hér á landi. Heimild til niðurfellingar virðisaukaskatts var fyrst bætt við lögin árið 2012 en tilgangur þess var að styrkja samkeppnishæfni umhverfisvænna bifreiða með litla eða enga losun koltvísýrings. Lengi vel hafa svonefndar tengiltvinnbifreiðar notið þessarar ívilnunar sem þó menga oft á köflum á við sparneytinn bensínbíl. Nú munu slíkar ívilnanir renna sitt skeið, sem 3. minni hluti styður. Aftur á móti voru metanbílar ávallt undanskildir þessum ívilnunum þrátt fyrir að vera mjög vistvæn ökutæki. Það kom mér satt að segja á óvart að á meðan tengiltvinnbílar sem menga töluvert meira en metanbílar hafa fengið þessa endurgreiðslu um árabil, þá hafa metanbílar ávallt verið undanskildir. Staðan er eins og hún er, en í ljósi þess að tengiltvinnbílarnir eru á leiðinni út þá tel ég rétt að metanbílarnir komi inn í nafni réttlátra umskipta og vegna umhverfisvænna sjónarmiða.

Metanbílar eru nefnilega afar vistvæn ökutæki og nýta þar að auki innlent eldsneyti. Metan er gas sem verður til við urðun á rusli hér á landi, en sjálft er gasið afar öflug gróðurhúsalofttegund – mun skaðlegri en koltvísýringur eða allt að 25 sinnum skaðlegri fyrir andrúmsloftið. Það er því nauðsynlegt að brenna metan frekar en að sleppa því út í andrúmsloftið. Að keyra metanbíl er því umhverfisvænt á tvo vegu: Það brennir hættulegu gasi og það gerir notanda bifreiðarinnar kleift að sniðganga jarðefnaeldsneyti. Flestir metanbílar eru með tanka bæði fyrir jarðefnaeldsneyti og metan sem fellur vissulega utan skilgreiningarinnar á hreinorkubíl en aftur á móti eru metanbílar mun umhverfisvænni en tengiltvinnbílar þar sem hægt er að keyra margfalt lengri vegalengd á metangasi heldur en flestir tengiltvinnbílar geta að jafnaði keyrt á rafmagni. Síðan er nóg af umfram metangasi á Íslandi sem verður að brenna og því er töluvert framboð af eldsneyti fyrir metanbíla sem gott væri að nýta frekar en sóa.

Nýir metanbílar eru að jafnaði töluvert ódýrari en nýir rafmagnsbílar og þeir eru þar að auki ekki eins kostnaðarsamir og mengandi í framleiðslu. Endurgreiðsla vegna metanbíla býður því upp á hagstæðari kost og er góð orkuskiptafjárfesting fyrir lægri tekjutíundir sem hafa ekki ráð á því að kaupa nýja rafbíla. Að útvíkka heimildina leiðir því til réttlátari umskipta í orkuskiptum.

Því legg ég til að bætt verði við ákvæðið heimild til að fella niður virðisaukaskatt við fyrstu sölu og endursölu metanbíla líkt og þegar um rafbíla og vetnisbíla er að ræða. Enn fremur legg ég til að bætt verði fjöldatakmörkun við 7. mgr. samhljóða fjöldatakmörkun vetnisbifreiða, þ.e. 15.000 ökutæki. Að öðru leyti styð ég þetta frumvarp en ég tel skorta upp á heildstæða sýn, að réttlát umskipti séu tekin með í reikninginn. Við verðum að virkja þessa vannýttu auðlind sem notkun metangass sem eldsneytis vissulega er, umhverfisins vegna.