Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

vextir og verðtrygging og húsaleigulög.

80. mál
[18:23]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti með frávísunartillögu um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu og húsaleigulögum, um aðgerðir til að sporna við áhrifum verðbólgu á húsnæðislán og húsaleigu.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að vísitala sem reiknuð er og birt í nóvembermánaðar 2021 skuli gilda um verðtryggingu neytendalána og fasteignalána frá 1. janúar til 31. desember 2022. Við útreikning verðbóta í janúar 2023 verði miðað við breytingu á vísitölunni frá október til nóvember 2022, en síðan í hlutfalli við breytingar á vísitölu neysluverðs frá októbermánuði til nóvembermánaðar 2022 og síðan í hlutfalli við breytingar á vísitölunni milli mánaða. Þá eru lagðar til breytingar þess efnis að óheimilt verði að hækka leigufjárhæð íbúðarhúsnæðis í hlutfalli við breytingar á vísitölu neysluverðs frá 1. janúar til 31. desember 2022.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.

Við umfjöllun nefndarinnar komu fram ólík sjónarmið um áhrif vísitölufrystingar á verðtryggð húsnæðislán og verðtryggða leigusamninga. Meiri hlutinn bendir á að frysting vísitölunnar hefur víðtæk efnahagsleg áhrif sem geta gengið þvert á tilgang og markmið frumvarpsins. Meiri hlutinn telur þó rétt að haldið verði áfram að fylgjast með stöðu á húsnæðismarkaði og stöðu heimilanna í landinu. Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið um mikilvægi þess að áfram verði unnið að því að draga úr vægi verðtryggingar, en ein forsenda þess er stöðugt verðlag.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar og henni falið að gera úttekt á kostum og göllum aðgerðarinnar.

Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Ágúst Bjarni Garðarsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir.