Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[12:02]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegur forseti. Ég ætla svo sem ekki að fara ofan í allt það sem hv. formaður umhverfis- og samgöngunefndar útskýrði hér varðandi afgreiðslu á þessu en vil þó hnykkja á því að í nefndaráliti er komið inn á það sérstaklega að við endurskoðun laganna sé líka skerpt betur á þessu ferli, þ.e. þegar fyrir liggur ákvörðun Alþingis með hvaða hætti við getum tekið málið upp með öðrum hætti í verkefnisstjórninni og hvað þarf að koma til í því samhengi. Því hafna ég þessari tillögu en stend engu að síður með náttúrunni.