136. löggjafarþing — 92. fundur, 4. mars 2009.
tilkynning um dagskrá.
Um kl. tvö í dag, að loknum umræðum um störf þingsins, fer fram utandagskrárumræða um endurúthlutun aflaheimilda. Málshefjandi er hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson en hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Steingrímur J. Sigfússon verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.