152. löggjafarþing — 92. fundur, 15. júní 2022.
sveitarstjórnarlög.
571. mál
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir breytingartillögu við mál 571, frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011, um íbúakosningar á vegum sveitarfélaga. Breytingartillagan er tæknilegs eðlis og er einungis ætluð til leiðréttingar og legg ég til að hún verði samþykkt.