Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 92. fundur, 30. mars 2023.
náttúruvernd.
912. mál
Virðulegi forseti. Mér datt bara í hug ein setning eftir að ég heyrði þín orð og við notum hana oft í Græna hernum: Rusl og drasl er hráefni á röngum stað. Erum við ekki sammála því? Þetta er bara á röngum stað, þetta á heima annars staðar. Ég þakka góða umræðu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)