154. löggjafarþing — 93. fundur,  10. apr. 2024.

Yfirlýsing forsætisráðherra og umræður um hana.

[15:04]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég geri hér grein fyrir helstu áherslum í endurnýjuðu ríkisstjórnarsamstarfi. Haustið 2021 vorum við kosin til að vinna að áframhaldandi framförum og árangri fyrir landsmenn alla. Eins og við öll vitum hafa ýmis óvænt verkefni komið í fang ríkisstjórnarinnar og ég vil meina að þeim hafi verið sinnt af alúð og það hafi vel tekist til. Nýlega náðust langtímasamningar á vinnumarkaði og í augnablikinu horfum við á hagkerfi þar sem atvinnustig er hátt, hagvöxtur er mikill, nýsköpun blómstrar og ný tækifæri verða til hvern dag. Við sjáum nýjan Landspítala rísa, valkostum sjúklinga fjölgar og íslensk heilbrigðisþjónusta fær aukið fjármagn. Grindvíkingar geta tekið ákvarðanir um sína framtíð í trausti þess að stjórnvöld standa með þeim. Við höldum áfram að byggja upp og treysta innviði landsins og lyfta á sama tíma undir með þeim sem þurfa mest á að halda. Það gengur vel á Íslandi en verkefninu er aldrei lokið; að halda áfram að byggja upp landið okkar, gera enn betur í dag en í gær. En þeim árangri sem hefur náðst og áfram stefnir í má ekki raska með pólitískum óstöðugleika. Framtakssemi fólks þrífst best við pólitískan stöðugleika og þessi ríkisstjórn mun tryggja hann og ná árangri fyrir fólkið í landinu út yfirstandandi kjörtímabil.

Virðulegi forseti. Við vitum hvaða mál eru Íslendingum efst í huga. Verðbólga er enn of há, fjölskyldur horfa margar á of háar afborganir og það er hagur allra að sú þróun sem við nú sjáum fram á, að verðbólga fer lækkandi, haldi áfram. Verðbólga hefur nefnilega tekið að hjaðna frá síðasta sumri og er nú 6,8% og undirliggjandi verðbólga bendir til þess að verðbólga muni áfram hjaðna næstu mánuði. Hverju spáir Seðlabankinn um verðbólguna á þessu ári? Jú, að hún verði komin undir 4%, þ.e. í um 4% í lok árs, og aðrar spár eru svipaðar. Það væri mikill árangur á skömmum tíma. Áframhaldandi lækkun verðbólgu og þannig efnahagslegur stöðugleiki fyrir heimilin í landinu og atvinnulífið verða leiðarljós okkar í allri okkar vinnu.

Virðulegi forseti. Traust landamæri eru grundvallaratriði í fullveldi hvers ríkis. Séríslenskar reglur mega ekki auka þrýsting á landamærin á Íslandi þannig að innviðir gefi eftir og við þurfum að bera okkur saman við það sem gerist í nágrannaríkjum, t.d. á Norðurlöndum, í þessu efni hvað regluverkið snertir. Ástand eins og það sem við höfum horft upp á undanfarin misseri er ósjálfbært og óásættanlegt. Stjórn á fjölda þeirra sem hingað sækja er forsenda þess að við getum tekið vel á móti þeim sem eiga rétt á að fá hér skjól. (Forseti hringir.) [Háreysti á þingpöllum.]

(Forseti (BÁ): Gestir á bekkjunum geta ekki kallað fram í. Gestir á bekkjunum verða að víkja og hafa þögn.)

Ástand sem er ósjálfbært getur ekki verið viðvarandi á Íslandi og við erum með frumvörp í þinginu til þess að taka á þessum málum. Við munum gera það. Það er grundvallaratriði að lagafrumvörp dómsmálaráðherra sem hér liggja fyrir þinginu verði kláruð á þessu þingi.

Virðulegi forseti. Byggðir og atvinnulíf í landinu þrífast á grænni orkuöflun og orkuskortur, eins og rætt hefur verið um í vetur, er óásættanlegt ástand. Orkuframleiðsla verður þess vegna aukin á kjörtímabilinu, virkjunarferlið einfaldað og valkostum í grænni orkuöflun og orkuframleiðslu fjölgað, í góðri sátt við fólk og við náttúru. Við getum ekki látið það gerast að virkjunarkostir sem hafa verið flokkaðir í nýtingarflokk af okkur á Alþingi í rammaáætlun tefjist þannig í frumskógi stjórnsýslunnar að það verði ekkert úr framkvæmdum fyrr en eftir allt of langan tíma. Þarna ætlum við að gera átak og fyrir þinginu liggja frumvörp sem munu hjálpa til við það.

Í um tíu ár hefur verið unnið að réttarbótum fyrir þá sem helst þurfa á að halda í okkar samfélagi: öryrkja. Allt frá því að nefnd Péturs H. Blöndals heitins var að störfum höfum við leitað leiða til að finna bestu útfærslu á breytingum almannatrygginga fyrir öryrkja og fjármagna það í leiðinni. Nú er loksins, eftir u.þ.b. áratugarvinnu — í heilan áratug höfum við verið að skoða þetta — komið frumvarp um heildarkerfisbreytingar. Það liggur fyrir þessu þingi og ásetningur okkar er til þess að klára það á þessu þingi. Með slíkum breytingum hjálpum við fólki til sjálfshjálpar. Með breytingum í anda þess sem félagsmálaráðherra hefur lagt fyrir þingið munum við tryggja að við stöndum með þeim sem mest þurfa á að halda í okkar samfélagi.

Ég get nefnt fleiri mál sem liggja fyrir þessu þingi eins og áform okkar í fiskeldismálum og ýmis grundvallarfrumvörp önnur sem verða kláruð á þinginu.

Virðulegi forseti. Það er heiður og það eru forréttindi að setjast í forsæti ríkisstjórnarinnar á Íslandi og ég mun leggja mig allan fram í það verkefni, rétt eins og allt samstarfsfólk mitt hér á ráðherrabekkjunum og í þingsalnum, og ég leita eftir góðu samstarfi við alla þingflokka hér á þinginu við að forgangsraða málum og hlusta eftir sjónarmiðum, en hér á þinginu eru eins og við vitum ólíkar raddir. Meirihlutaviljinn verður hins vegar ávallt á endanum að vera leiðandi í lýðræðissamfélagi.

Þegar flokkar með ólíka sýn á fjölda mála sammælast um að axla ábyrgð á stjórn landsins þá ber stundum í milli, vissulega, og nema hvað. Upp koma ágreiningsmál og úr þeim þarf að leysa, rétt eins og í öllu samstarfi. Þeir einir takast aldrei á sem eru með öllu skoðanalausir. Það er beinlínis innbyggt í lýðræðislega umræðu að gera þarf málamiðlanir og leita sameiginlegrar lendingar. Ekki þarf að leita langt út fyrir landsteinana til að finna ríki þar sem engar málamiðlanir og engin lýðræðisleg umræða fer fram, þar sem bara einn tekur ákvörðun. Ég hygg að slíkan veruleika vilji fæstir og við megum öll vera þakklát fyrir að búa hér í einhverju frjálsasta lýðræðissamfélagi veraldar, jafnvel þótt stjórnmálaflokkarnir átta sem mynda saman þingið séu ekki alltaf sammála um hvert og eitt mál. Þó að margir hafi hagsmuni af því að mála árangursríkt samstarf síðustu ára dökkum litum er raunin sú að samstarfið hvílir á góðum grunni; grunni sem allt í senn er traustur, byggir á drjúgum þingmeirihluta, sáttmála um málefnin sem ráða för og sameiginlegri trú okkar á tækifærin í íslensku samfélagi.

Virðulegi forseti. Staða okkar Íslendinga er um margt öfundsverð í alþjóðlegum ólgusjó. Þrátt fyrir að glíma við veður og vinda, ofanflóð og kraumandi kviku finnst vart sú þjóð sem býr við betri lífskjör en við Íslendingar. Höfum það í huga þegar okkur greinir á um leiðirnar fram á við. Við búum að sterkum efnahag, stöðugleika í stjórnmálum og ríkulegum náttúruauðlindum. Við erum frjáls og fullvalda þjóð, laus við kúgun og stríðsbrölt sem nú gengur yfir allt of víða. Hér er jöfnuðurinn meiri, tækifærin fleiri og sóknarhugurinn stærri en víðast hvar. Ég hlakka til áframhaldandi árangursríks samstarfs til góðra verka á kjörtímabilinu. [Háreysti á þingpöllum.]

(Forseti (BÁ): Gestir á bekkjunum eru beðnir um að vera algjörlega hljóðir, annars verður þeim vísað á dyr.)