149. löggjafarþing — 93. fundur,  10. apr. 2019.

almenn hegningarlög o.fl.

796. mál
[21:46]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Mig langaði að koma upp og þakka fyrir góðar og málefnalegar umræður hjá hv. þingmönnum. Ef þetta verður umræðan í nefndinni og hér í þingsal í málinu er ég viss um að við komumst langt með það, klárum það, og ef einhvern veginn er hægt að bæta málið væri það mjög gott. Ég þakka fyrir áhuga þingmanna og fyrir málefnalegar umræður. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)