154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

brottfall ýmissa laga á sviði fjármálamarkaðar.

913. mál
[12:03]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég vildi bara koma og hrósa ráðherra fyrir að leggja fram þetta frumvarp. Ég lagði fram ásamt þingflokki Pírata einmitt frumvarp til laga um brottfall laga árið 2018 þar sem er að finna nokkurn veginn svona öll þau lög sem á að fella hér úr gildi. Það hefði bara verið ágætt að klára málið árið 2018.