Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 94. fundur, 17. apr. 2023.
staðfesting kosningar.
Hæstv. forseti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur fengið til meðferðar tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu Ástrósar Rutar Sigurðardóttur sem 3. varaþingmanns á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi. Nefndin hefur fundað til að fjalla um kosninguna og kjörgengið og mælir hún einróma með staðfestingu kosningar Ástrósar Rutar Sigurðardóttur.