138. löggjafarþing — 95. fundur, 22. mars 2010.
kjaramál flugvirkja.
483. mál
Frú forseti. Við lifum óvenjulega tíma með kjaraskerðingum, atvinnumissi o.s.frv. Ég spyr hv. þingmann hvort hann telji að það sé einkamál þessarar stéttar að hafna launahækkunum upp á 11% og krefjast 15% launahækkunar og beita miklu afli verkfallsins til að knýja það fram í þessari stöðu.