136. löggjafarþing — 96. fundur, 6. mars 2009.
virðisaukaskattur.
289. mál
Frú forseti. Á þskj. 667 og 668 eru nefndarálit frá minni hluta efnahags- og skattanefndar og breytingartillögur frá minni hluta efnahags- og skattanefndar. Ég vil gjarnan spyrja frú forseta hvernig staða þeirra mála er, hvort þau verði ekki tekin með á eftir þegar þetta mál verður rætt.