Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 96. fundur,  19. apr. 2023.

virðisaukaskattur o.fl.

952. mál
[16:11]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu og greinargóð svör hér. Ég er á svipuðum slóðum og hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson og langar aðeins að forvitnast um ákveðin atriði er lúta að þessari lækkun á endurgreiðsluhlutfalli úr 60% í 35% eins og fram kemur í 5. gr. frumvarpsins. Ég rek augun í, og sýni því nú skilning, að í skýringum með þessari grein gafst ekki, ef ég skil þetta rétt, svigrúm eða tækifæri til að leggja upp með það að kanna í samráði hvaða áhrif þetta kynni að hafa. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi áhyggjur af því að þessari lækkun geti fylgt aukning í skattundanskotum.