139. löggjafarþing — 97. fundur, 22. mars 2011.
tilkynning um úrsögn úr þingflokki.
Borist hefur svohljóðandi bréf frá Atla Gíslasyni, 4. þm. Suðurk., og Lilju Mósesdóttur, 6. þm. Reykv. s.:
„Forseti Alþingis.
Hér með tilkynnist að við höfum í morgun, á þingflokksfundi Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, sagt okkur úr þingflokknum. Við munum héðan í frá starfa sem óháðir alþingismenn.
Reykjavík, 21. mars 2011,
Atli Gíslason.
Lilja Mósesdóttir.“