141. löggjafarþing — 97. fundur, 11. mars 2013.
vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
651. mál
Frú forseti. Tilgangur þeirrar tillögu sem hér er rædd er óljós. Stuðningsmenn hennar eru vaklandi. Hér reitt hátt til höggs og í raun virðist eini tilgangurinn vera sá að drepa stjórnarskrármálið endanlega í þinginu. Ég segi nei.