túlkun reglna um hagsmunaskráningu þingmanna.
Virðulegi forseti. Í ljósi pólitískrar stöðu og þess ástands sem varir á Íslandi tel ég rétt að óska eftir svörum hæstv. forseta við tilteknum spurningum sem lúta að túlkun þingmanna á reglum um hvernig skrá skuli hagsmuni þingmanna.
Það liggur fyrir í samfélagsumræðunni, í fjölmiðlum og af hendi ýmissa ráðamanna hér, bæði forustufólki í ríkisstjórninni sjálfri og í þingflokkum stjórnarflokkanna, að skilningurinn er mismunandi.
Ég spyr hæstv. forseta hvernig hann hyggist bregðast við mismunandi túlkun þingmanna á reglum um það hvernig skrá skuli hagsmuni þingmanna.
Í öðru lagi hvort forseti telji að reglur hafi verið brotnar þegar fyrrverandi forsætisráðherra kaus að skrá ekki eignarhlut sinn í Wintris þegar hann var kosinn á þing 2009.
Í þriðja lagi hvort forseti telji að fjármálaráðherra hafi brotið reglur þegar hann skráði ekki eignarhlut sinn í Falson, en hann hefur gegnt þingmennsku eins og kunnugt er frá árinu 2003.
Tengd mál
- Siðareglur fyrir alþingismenn, 115. mál, þingsályktunartillaga.
- Hagsmunaskráning þingmanna, B696. mál, óundirbúinn fyrirspurnatími.
- Hagsmunaskráning þingmanna og siðareglur, B714. mál, óundirbúinn fyrirspurnatími.