150. löggjafarþing — 97. fundur,  5. maí 2020.

breyting á ýmsum lagaákvæðum um innlánsdeildir og hæfisskilyrði stjórnarmanna og framkvæmdastjóra samvinnufélaga.

448. mál
[14:28]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá efnahags- og viðskiptanefnd um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um innlánsdeildir og hæfisskilyrði stjórnarmanna og framkvæmdastjóra samvinnufélaga. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sigurbjörgu Stellu Guðmundsdóttur og Hörpu Theodórsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Nefndinni barst umsögn um málið frá Seðlabanka Íslands.

Með frumvarpinu er annars vegar lagt til að 2. gr. a laga um samvinnufélög, nr. 22/1991, sem fjallar um heimild samvinnufélaga til að starfrækja innlánsdeildir falli brott. Jafnframt eru lagðar til breytingar á öðrum lögum, samanber II.–VII. kafla frumvarpsins, sem leiðir af brottfalli þeirrar heimildar. Hins vegar eru lagðar til breytingar á 27. gr. laganna um að hæfisskilyrði stjórnarmanna og framkvæmdastjóra samvinnufélaga verði sambærileg því sem á við um stjórnarmenn og framkvæmdastjóra hlutafélaga og einkahlutafélaga.

Í umsögn Seðlabankans kom fram að Fjármálaeftirlitið hefði bent á að óheppilegt væri að starfsemi innlánsdeilda færi fram hjá félögum sem ekki lytu sambærilegum varúðarreglum og viðskiptabankar og sparisjóðir. Seðlabankinn styddi framgang frumvarpsins og þakkaði það samráð sem hafði verið viðhaft við samningu þess.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Undir nefndarálitið skrifa auk mín hv. þingmenn Óli Björn Kárason, sem er formaður nefndarinnar, Brynjar Níelsson, Smári McCarthy, Oddný G. Harðardóttir, Þorgrímur Sigmundsson, Þorsteinn Víglundsson, Ólafur Þór Gunnarsson og Willum Þór Þórsson.